Dómína og Sadisti

~ Pain is mandatory, suffering is optional ~

13.04.2008 17:41:14 / goddess_lillith

Ljóð

Var að ræða við góðan vin í gær um ljóðin mín, ákvað í framhaldinu að pósta nokkrum sem tengjast umræðuefni þessa vefs. Ég er ekker atvinnuskáld, en þetta er eitthvað sem ég stundum geri til að geyma minningu eða grípa tilfinningu fyrir mig sjálfa, njótið eða hrjótið:

Ég sé þig skýrar en nokkur fyrr
horfi inn að kjarna
skil hismið frá
hefst svo handa

bind atómin
dreg fram faldar hliðar
særi út illa anda
moka mold að lífvana fræjum

án þess að kenna hvaðan breytingarnar koma

þú samþykkir meðvitað,
framtíðin örugg

---

Oddhvasst járn brýtur varnir
Ráðandi fylkingar á hverja hönd
stjórna sjónarspilinu
Stríðslúðar fylla hvelfingar
Fórnarblóð flæðir úr holdi
Lyktin yfirgnæfandi
Biturleikinn sætur
Engin miskun, engin undankoma
Innlima þig í ríki mitt.

---

Brjóstkassin rís og hnígur
Ég finn augu þín fylgja
Fætur lausir undan fargi
Góðan daginn segirðu
og ferð

Ég veit.

---

Fann þig á förnum vegi
plokkaði af þér vængina
batt þig í vef minn
vafði límþráðum um þig
tók af þér andardráttinn
horfði á þig hverfa í algleymið
geymdur en ekki gleymdur um stund
leysti þig úr fjötrunum
og sá nýfætt fiðrildið flökkta heim
BDSM Ljóð

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Paintoyið mitt
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 16487